Í þessum áfanga eiga nemendur fjalla um sögu einstakra ríkja eða svæða. Efnið getur verið breytilegt eftir því hvaða ríki eða svæði eru áhugaverðust hverju sinni fyrir nemendur og kennara vegna tiltekinnar þróunar eða atburða. Lögð er áhersla á að dýpka þekkingu nemenda á þeim ríkjum eða svæðum sem fjallað er um en einnig að fjalla sérstaklega um, stjórnmál, efnahagsmál, menningu, dægurmál og annað sem er efst á baugi hjá viðfangsefninu á hverjum tíma.
Almennt talað henta söguáfangar mjög vel til fræðslu um og skoðanaskipta á öllum grunnþáttunum og auðvelt er að þjálfa öll svið lykilhæfninnar. Í þessum áfanga er fjallað sérstaklega um það hvernig grunnþættirnir birtast í umfjöllun um tiltekið ríki eða svæði og lykilhæfnin þjálfuð í umræðu um það.
SAG1FM03, SAG2ND03 og SAGA2NT04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvar viðkomandi ríki eða svæði er á hnettinum og við hvaða náttúrulegar aðstæður íbúarnir þar búa
helstu þáttum í sögu viðkomandi ríkis/svæðis
hvað vekur athygli og áhuga alls heimsins á viðkomandi ríki/svæði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa og túlka sagnfræðilegan texta á íslensku
vinna sjálfstætt við öflun heimilda, nýta sér fjölbreyttar tegundir þeirra og meta gildi þeirra og áreiðanleika
nota ólík miðlunarform fyrir söguleg efni; t.d. skrifa ritgerðir og blaðgreinar, útbúa þátt fyrir útvarp eða sjónvarp og undirbúa og flytja fyrirlestur fyrir jafningja sína
ganga frá heimildaritgerð á þann hátt að hún væri tæk til birtingar
beita gagnrýninni hugsun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
koma söguskilningi og söguþekkingu á framfæri með fjölbreyttum hætti
geta tekið þátt í skoðanaskiptum og rökræðum með jafningjum um sagnfræðileg efni
sýna umburðarlyndi og víðsýni í umfjöllun um söguleg viðfangsefni
meta fréttir og fréttatengt efni um tiltekið ríki eða svæði og geta á auðveldan hátt tengt það við þekkingu sína eða aflað sér upplýsinga til að mynda gagnrýna skoðun á því sem er í umræðunni hverju sinni
leggja mat á eigin frammistöðu og annarra
Námsmat er símat án sérstaks lokaprófs. Beitt er jöfnum höndum hefðbundnu mati og óhefðbundnu og fjölbreyttum matsaðferðum.
Þekkingin er metin fyrst og fremst með lotuprófum úr afmörkuðum efnisþáttum og verkefnum sem bæði eru unnin í tímum og heima.
Leiknin er einkum metin út frá vinnubrögðum við öflun og notkun heimilda, samningi eigin texta, skilningi á lesnum texta og jafningjamati. Við mat á leikni við ritgerðarsmíð er beitt leiðsagnarmati þar sem kennarinn fylgist með tilurð ritgerðarinnar, les hana tvisvar fullgerða og nemandinn leiðréttir milli lokalestranna.
Hæfnin er metin út frá þátttöku og árangri í samræðum, rökræðum og skoðanaskiptum við jafningja og kennara, hvernig nemendum gengur að miðla efni til jafningja sinna og sjálfsmati nemenda. Sérstök áhersla er lögð á að meta hæfni nemenda við ritun, bæði á prófum, í verkefnum og við ritun og frágang á heimildaritgerð.