Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433256467.75

    Framhaldsáfangi í kvikmyndagerð
    KVMG2FL05
    11
    kvikmyndagerð
    framleiðsla, handrit, leikstjórn
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum vinna nemendur stærri og flóknari verkefni í kvikmyndagerð. Farið er dýpra í frásagnaraðferðir stuttmynda og heimildamynda. Farið er í mismunandi uppbyggingu kvikmynda eftir eðli þeirra og tegund. Nemendur læra meginatriði myndbandagerðar svo sem gerð tökuáætlana, undirbúning á upptökustað og beitingu kvikmyndatökuvéla og klippiforrita.
    KVMG1HM05 eða sambærilegt nám á hæfniþrepi 1
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • handritsskrifum og sjónrænni uppbyggingu frásagnar
    • mikilvægi skipulagðra vinnubragða
    • mismunandi stílum og afurðum í kvikmyndagerð
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • túlka eigin hugmyndir og skoðanir með frásagnartækni kvikmyndarinnar
    • meðhöndla myndbandsupptökuvél
    • lýsa, taka upp og fullvinna viðtöl og annað myndefni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna úr hugmyndum og beita aðferðum kvikmyndarinnar til tjáningar
    • nýta sér mismunandi aðferðir og persónuleg efnistök til þess að tjá hugmyndir
    • fjalla um eigið verk og annarra og tengt það verkum úr heimi kvikmynda
    Fjölbreytilegt námsmat með áherslu á símat, tíða endurgjöf og leiðsögn. Vinna nemenda í kennslustundum er metin, lögð eru fyrir einstaklings- og hópverkefni og stutt próf eftir atvikum. Lokaverkefni er metið.