Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433944775.4

    Grunnteikning 1
    GRTE1FF05
    2
    grunnteikning
    fallmyndun, fríhendisteikning, teikniskrift, ásmyndun
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist almenna undirstöðuþekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Áfanginn skiptist í tvo megin efnisþætti. Í fyrri efnisþætti læra nemendur fallmyndun og í þeim seinni ásmyndun og fríhendisteikningu. Í áfanganum er gert ráð fyrir að nemendur öðlist færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda, myndrænni vinnu með viðfangsefni starfsgreina, lestur teikninga og fái grunnþjálfun í gerð vinnuteikninga og þrívíðra rissteikninga. Áfanginn er undirbúningur fyrir áframhaldandi nám í teiknifræðum og lestri vinnuteikninga.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • gerð fallmynda
    • gerð sneiðmynda á einföldum hlutum
    • vinnulagi við gerð einfaldra vinnuteikninga, svo sem málsetningu, mælikvörðum, myndröðun, staðsetningu teikninga á blaði, línugerðum og merkingu þeirra og styttingu flata og kanta
    • teikniáhöldum og tilgangi þeirra
    • teikningu ásmynda
    • málsetningu ásmynda
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota teikni- og mæliáhöld
    • teikna einfaldar fallmyndir og sneiðmyndir samkvæmt viðurkenndum stöðum og venjum
    • lesa og skilja einfaldar vinnuteikningar
    • skrifa teikniskrift
    • teikna fríhendis
    • teikna ásmyndir af einföldum hlutum samkvæmt reglum, stöðlum og venjum
    • málsetja ásmyndir fríhendis
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa einfaldar fagbundnar teikningar á sviði hönnunnar og iðngreina
    • skipuleggja, teikna og miðla á skilvirkan hátt einföldum fallmyndum
    • skipuleggja, teikna og miðla á skilvirkan hátt einföldum fríhendisteikningum
    • leggja stund á frekara nám í teiknifræðum
    Verkefnamappa og próf.