Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434117147.22

    Módel 1 - Teikning og mótun
    MÓDE1TM03
    1
    módelteikning
    teikning og mótun
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Áfanginn skiptist í tvennt, teikningu og leirmótun með módel sem fyrirmynd. Markmiðið er að nemendur öðlist skilning á þeim þáttum sem mestu skipta við teikningu og mótun mannslíkama. Nemendur tileinka sér aðferðir til að mæla hlutföll mannslíkamans. Ýmist eru teiknaðar eða mótaðar styttri stöður módels þar sem áherslan er á heildarsýn eða lengri stöður sem útheimta vandaðri mælingar og meiri nákvæmni. Nemendur skoða dæmi úr listasögu og samtíma um það hvernig mannslíkaminn hefur verið ríkjandi viðfangsefni myndlistarmanna og hönnuða í gegnum tíðina.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • því hvernig lína, form og skuggi móta teikningu
    • aðferðum til að mæla stærðir og hlutföll og byggja upp mynd af líkamanum
    • formum og þrívíddarhugsun módelteikningu og -mótun
    • dæmum úr listasögunni þar sem módel er ráðandi þáttur
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • mæla hlutföll mannslíkamans og sjá og skilgreina form hans
    • beita fjölbreyttri línu og skyggingu til að móta mannslíkamann með teikningu
    • móta mannslíkamann á sannfærandi hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • móta þrívíða mynd af módeli
    • staðsetja módel í rými og teikna mannslíkamann í réttum hlutföllum
    • greina og ræða um ólík dæmi úr listasögunni þar sem módel er ráðandi þáttur