Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434618665.67

    Íþróttagrein-Badminton/ Líkamsrækt
    ÍÞRG1BÞ02
    22
    íþróttagrein
    Badminton og Líkamsrækt
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum læra nemendur að leiðbeina börnum undirstöðuatriði í badminton í samvinnu við kennara. Lögð er áhersla á kennslu grunnfærni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Farið verður í grunnáherslur í verklegri styrktarþjálfun. Framkvæmd æfinga og mismunandi áherslur í sambandi við mismunandi markmið. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í bandminton
    • leikreglum
    • kennslu í bandminton
    • mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í badminton
    • mikilvægi styrktarþjálfunar
    • mismunandi leiðum til styrktarþjálfunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur bandminton iðkanda
    • íþróttinni bandminton og miðla því frá sér
    • beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni bæði í bandminton og styrktarþjálfun (tækjasal)
    • þjálfa í þreksal
    • sýna og framkvæma ýmsar styrktarþjálfunar æfingar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta leiðbeint ýmsum aldurshópum í badminton í samvinnu við kennara
    • geta búið til tímaseðla, vikuáætlun og mánaðaráætlun með ákveðinn aldur í huga
    • geta beitt fjölbreyttum aðferðum við bandmintonþjálfun
    • geta framkvæmt algengustu lyftingaæfingar rétt
    • geta leiðbeint fólki í þreksal með fjölbreytt æfinga val og rétta tækni í samvinnu við kennara