Efnið fer í aðalatriðum eftir vali kennarans, t. d. tölur, mengi, 1. og 2. stigs jöfnur, rökfræði og talningarfræði. Notkun vasareiknis og forrita. Föll og gröf, netafræði. Vaxtareikningur og vísitölur.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
deilanleika og frumþáttun talna, náttúrulegum tölum, heilum tölum, ræðum tölum, rauntölum og bilum á rauntalnaásnum
undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og 1. og 2. stigs jöfnum
einföldum mengjareikningi
einfaldri talningarfræði og líkindareikningi í endanlegu líkindarúmi með jafndreifðum líkum
grunnatriðum töflureiknis og einhvers sérhæfðs stærðfræðiforrits
tugveldarithætti talna og staðalformi, mælingaskekkju
yrðingarökfræði og sanntöflum
fallhugtakinu, formengi falls og varpmengi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
frumþátta tölur, breyta lotutugabrotum í almenn brot og fjalla um talnamengi af kunnáttu
nota undirstöðureglur talna- og bókstafareiknings til einföldunar stærðtákna og útreiknings með vasareikni
nota mengi og Vennmyndir til að leysa verkefni
meta eða finna líkur á ýmsu sem fyrir kemur í daglegu lífi
nota forrit til að leysa ýmis reikningsleg viðfangsefni
nýta sér tugveldarithátt og mælinákvæmni til að bera saman tölur
setja upp sanntöflu fyrir samsettar yrðingar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur