Í áfanganum fá nemendur frekari þjálfun í að móta og þróa hugmyndir og myndmál. Áhersla er lögð á að kynna skipulegar rannsóknaraðferðir sem ýmsir listamenn og hönnuðir beita í skapandi starfi. Sýnd verða dæmi um skissubækur listamanna og hönnuða. Nemendur leysa ýmis verkefni og vinna á fjölbreyttan hátt með skissubók.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi eiginleikum ólíkra verkfæra og áhalda til skissuvinnu
skipulegum rannsóknaraðferðum við hugmynda- og skissuvinnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að þróa hugmyndir sínar áfram og vinna úr þeim með skipulegum hætti
setja hugmyndir sínar í samhengi við umfjöllunarefni hverju sinni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
þróa hugmynd út frá kveikju
dýpka hugmyndavinnu með því að nota skissubók
nýta sér skipulegar rannsóknaraðferðir til þess að skerpa á og halda utan um hugmyndir, bæta úrvinnslu og persónuleg efnistök í skapandi starfi