Markmiðið er að nemendur lesi þýsku sér til ánægju og gagns og þjálfist í að nota
tungumálið til að tala um efni sem þeir hafa lesið og kynnt sér. Unnið verður með
styttri bækur, ævintýri, ljóð, barnabækur og tímaritsgreinar. Nemendur velja að
stórum hluta það efni sem þeir vinna með. Í upphafi áfangans eru nokkrar
hefðbundnar kennslustundir þar sem efnisflokkar og vinnubrögð eru kynnt. Eftir það
vinna nemendur hver fyrir sig en geta leitað aðstoðar kennara. Lögð er áhersla á
sjálfstæð vinnubrögð. Nemendur kynna verkefni sín í einkaviðtölum við kennara og skila skriflegum greinargerðum.
ÞÝSK1ÞC05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ólíkum textagerðum, s.s. styttri skáldsögum, smásögum, ævintýrum, barnabókum og tímaritsgreinum
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
notkun þýsku til að mæta markmiðum áfangans bæði munnlega og skriflega
mannlífi og menningu í löndum þar sem þýska er töluð sem móðurmál
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa margs konar texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt
kynna afmörkuð, undirbúin efni og taka þátt í samræðum um þau með því að beita framburði og málnotkun á sem réttastan hátt
skrifa styttri samfelldan texta, t.d. samantekt, draga ályktanir og tjá eigin skoðanir
nota hjálpargögn, svo sem orðabækur, við úrvinnslu texta
velja sér lesefni á hæfilegu þyngdarstigi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega, um efni sem hann hefur valið sér og tjá eigin skoðanir
fjalla um og halda uppi samræðum um efni sem hann hefur kynnt sér
vinna sjálfstætt og skipulega
meta eigið vinnuframlag
tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunnar og hafa trú á eigin kunnáttu í faginu.