Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436218615.92

    Verktækni grunnnáms D
    VGRT3GD03
    2
    Verktækni grunnnáms rafiðna
    Grunndeild D
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Nemendur beita rásahermiforritum og teikniforritum til að smíða tvíhliða prentplötu fyrir tiltekna rafeindarás. Nemendur smíða kassa úr áli eða sambærilegu efni til að hýsa rásina. Markmiðið er að nemendur öðlist leikni í smíði rafeindarása og geti byggt kassa til skermingar úr áli eða blikki sem hentar og læri um fljótandi jörð.
    VGRT2GC03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Virkni transistora.
    • Virkni díóða.
    • Virkni transistora sem rofa.
    • Virkni transistora sem magnara.
    • Virkni rafeindarása fyrir hliðræna eða stafræna virkni.
    • Öryggisreglum er varða jarðbindingar.
    • Öryggisreglum er varða helstu áhöld til málmsmíða.
    • Reikna strauma út frá mælingum.
    • Reikna strauma út frá mælingum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Setja upp snyrtilega rafeindarás.
    • Mæla rafeindarásir með AVO mæli.
    • Reikna strauma út frá mælingum.
    • Reikna strauma út frá mælingum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Teikna rafeindarás í rásahermi.
    • Láta rásina virka í rásahermi.
    • Mæla Vpp gildi, tíðni og tíma plús ris og falltíma í rásahermi.
    • Hanna prent út frá rásateikningu.
    • Smíða rás með etching aðferð.
    • Færa teikningar milli forrita til að laga að fræsara.
    • Smíða prentrás með fræsara.
    • Prófa og staðfesta virkni í raunrás.
    • Smíða kassa utan um rafeindarás.
    • Láta rásina virka.
    Að minnsta kosti 5 verkefni standi undir námsmati þar sem hvert hefur 5 – 25% vægi. Í hverjum þætti þarf að meta virkni rásar, frágang og iðni nemandans.