Í áfanganum er lögð áhersla á að auka orðaforða og málfræðiskilning nemenda. Unnið verður með lestur, tjáningu, hlustun og ritun texta til að auka skilning og máltilfinningu. Unnið verður með þemu sem tengjast nemendum og upplifun þeirra í daglegu lífi.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnþáttum enskrar málfræði
mæltu máli á enska tungu
einföldum textum
notkun ensks talmáls
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa einfaldan texta
skrifa einfaldan en málfræðilega réttan texta
skilja enskt talmál
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig á einfaldan hátt á ensku í ræðu og riti
lesa sér til gagns og gamans
skrifa einfaldan texta
taka virkan þátt í samtölum á ensku
Leiðsagnarmat, þar sem verkefni og vinna nemenda eru metin jafnt og þétt.