Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1439638495.41

    Tennis
    ÍÞRG3TN02(FB)
    34
    íþróttagrein
    Tennis
    Samþykkt af skóla
    3
    2
    FB
    Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í tennis. Lögð er áhersla á kennslu spaðatækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Áfanginn er bóklegur og verklegur. Nemendur þjálfist í kennslu í tennis. Efnisatriði: Tennis, spaðatækni, tækniþjálfun, forhönd, bakhönd, uppgjöf, blak, leikskipulag, sérhæfð þolþjálfun, leikreglur, teygjur, liðkun. Dómgæsla. Framkvæmd: Bókleg og verkleg, þar sem megináhersla er lögð á æfingakennslu nemenda.
    Nemendur hafi lokið ÍÞRF2ÞB05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • allri grunntækni í tennis
    • mismun á þjálfun barna, unglinga og fullorðinna í tennis
    • leikreglum í tennis
    • undirbúningi og skipulagi tennisæfinga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • að undirbúa og framkvæma blakæfingu fyrir börn að 12 ára aldri
    • helstu tækniatriðum í tennis og vera fær um að kenna þessi atriði
    • dómgæslu í tennis
    • að kenna leikfræði í tennis
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • undirbúa þjálfun og gera tímaseðil fyrir tennisæfingu
    • skipuleggja þjálfun í tennis
    • dæma keppni hjá yngstu iðkendum
    Í áfanganum er skriflegt lokapróf og nemendur skila ýmsum verkefnum varðandi heimsóknir, æfingakennslu og tímaseðlagerð.