Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1439638640.69

    Knattspyrna
    ÍÞRG3KN02(FB)
    39
    íþróttagrein
    knattspyrna
    Samþykkt af skóla
    3
    2
    FB
    Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði knattspyrnu. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Áfanginn er bóklegur og verklegur. Nemendur þjálfist í kennslu knattspyrnu. Efnisatriði: Knatttækni, tækniþjálfun, knattrak, sendingar, varnarstaða, varnarhreyfingar, skottækni, markmannsþjálfun, leikskipulag, sérhæfð þolþjálfun, leikreglur, teygjur. Dómgæsla. Framkvæmd: Bókleg og verkleg þar sem einnig er lögð áhersla á æfingakennslu nemenda.
    Nemendur hafi lokið ÍÞRF2ÞB05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • allri grunntækni knattspyrnu
    • mismun á þjálfun barna, unglinga og fullorðinna í knattspyrnu
    • leikreglum í knattspyrnu
    • undirbúningi og skipulagi knattspyrnu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • að undirbúa og framkvæma knattspyrnuæfingu fyrir börn að 12 ára aldri
    • helstu tækniatriðum knattspyrnu og að kenna þessi atriði
    • dómgæslu í knattspyrnu
    • að kenna leikfræði knattspyrnu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja þjálfun í knattspyrnu
    • dæma leiki hjá yngstu iðkendum
    • undirbúa þjálfun og gera tímaseðil fyrir knattspyrnu
    Í áfanganum er skriflegt lokapróf og nemendur skila ýmsum verkefnum varðandi heimsóknir, æfingakennslu og tímaseðlagerð.