Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1439640234.56

    Skvass
    ÍÞRG3SK02(FB)
    41
    íþróttagrein
    Skvass
    Samþykkt af skóla
    3
    2
    FB
    Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í skvassi. Lögð er áhersla á kennslu í skvasstækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Áfanginn er bóklegur og verklegur. Nemendur þjálfist í kennslu í skvassi. Efnisatriði: Skvass, fótavinna, tækniþjálfun, bakhönd og forhönd, uppgjafir, gabbhreyfingar, hindranir, leikskipulag, sérhæfð þolþjálfun, leikreglur, teygjur, liðkun. Dómgæsla. Framkvæmd: Bókleg og verkleg, þar sem megináhersla er lögð á æfingakennslu nemenda. Nemendur munu einnig spreyta sig á leikgreiningu í skvassi.
    Nemendur hafi lokið IÞFR2ÞB05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • allri grunntækni skvassi
    • leikreglum í skvassi
    • undirbúningi og skipulagi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • að undirbúa og framkvæma skvassæfingar
    • helstu tækniatriðum í skvassi og kenna þessi atriði
    • dómgæslu í skvassi
    • að kenna tækni og leikskipulag í skvassi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • undirbúa þjálfun og gera tímaseðil fyrir skvass
    • skipuleggja þjálfun í skvassi
    • þekkja reglur skvassíþróttarinnar
    Í áfanganum er skriflegt lokapróf og nemendur skila ýmsum verkefnum varðandi heimsóknir, æfingakennslu og tímaseðlagerð.