Andlitsmeðferð byrjunaráfangi til sveinsprófs í snyrtifræði
ANMF2AB04(FB)
2
Andlitsmeðferð
Starfsemi húðar, húðgreining og grunnsnyrtivörur– bóklegur áfangi með tengingu í verklega þætti, nudd, vöðvabygging
Samþykkt af skóla
2
4
FB
Í áfanganum er farið í uppbyggingu og starfsemi húðar, vöðvabyggingu andlits, höfuðs, háls og herða. Ennfremur er farið í tilgang hreinsunar, hlutverk nudds og efnisgerð og notkun grunnsnyrtivara. Lært er að greina á milli mismunandi húðgerða og markmið meðferðar skilgreind. Nemendur læra um hreinsivörur, nuddefni, krem og serum sem notuð eru í verkþáttum í grunn andlitsmeðferð og tengja við áfangann ANMF2AA05.
Almennt grunnnám samkvæmt námsbrautarlýsingu snyrtibrautar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi húðlögum, helstu frumugerðum húðar og virkni þeirra á starfsemi hennar
hlutverki húðar og starfsemi hennar með tilliti til æða- og taugakerfis, ónæmis, kirtlastarfsemi og litarefnis
beinum höfuðkúpu, axla, bringu og herða
staðsetningum, upptökum, festum og hreyfingum höfuð-, háls- og herðavöðva
áhrif nudds á húðvefi, vöðva og blóð- og sogæðakerfi líkamans
nuddhreyfingum í sænska nuddkerfinu og þekki mismunandi áhrif þeirra á líkamann og frábendingum
almennum skilgreiningum á mismunandi húðgerðum og helstu einkenni þeirra
helstu aðferðum við notkun ólíkra hreinsivara
ólíkum efnum sem notuð eru við andlits- og herðanudd
ólíkum kremum, virkum innihaldsefnum, lífvirkum áhrifum og tilgangi þeirra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja hreinsivörur, nuddefni, krem og serum sem koma til móts við þarfir ólíkra húðgerða
velja á milli mismunandi verktækni við að hreinsa yfirborð húðar eftir því hvaða hreinsivörur eru notaðar
þekkja vöðva andlits, höfuð og herða, staðsetningu þeirra og starfsemi
gera skil á mismunandi nuddtækni, áhrifum þeirra og virkni fyrir húð, vöðva og vessakerfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera grein fyrir vali grunnsnyrtivara og efna í meðferð og rökstyðja það með vísun til starfsemi og uppbyggingu húðar
gera grein fyrir mismunandi tilgangi nuddhreyfinga sem nuddkerfi samanstanda af og geti stutt það rökum með tilliti til starfsemi vöðva andlits, höfuðs og herða
aðgreina mismunandi húðgerðir og skynja mismunandi þarfir þeirra við meðhöndlun, val á snyrtivörum og ráðgjöf
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
Vinnueinkunn (verkefnavinna, kannanir, skyndipróf, frammistaða í tímum) og lokapróf