Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1441722275.4

    Enska - fornámsáfangi 2
    ENSK1EO04
    50
    enska
    Skilningur og orðaforði
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Í áfanganum er lögð áhersla á lestur, að auka orðaforða og málfræðiskilning nemenda. Unnið verður með lestur, tjáningu, hlustun og ritun texta til að auka skilning og máltilfinningu. Unnið verður með þemu sem tengjast nemendum og upplifun þeirra í daglegu lífi.
    ENSK1OM04
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnþáttum enskrar málfræði
    • mæltu máli á enska tungu
    • einföldum textum
    • notkun ensks talmáls
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa einfaldan texta
    • skrifa einfaldan en málfræðilega réttan texta
    • skilja enskt talmál
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá sig á einfaldan hátt á ensku í ræðu og riti
    • lesa sér til gagns og gamans
    • skrifa einfaldan texta
    • taka virkan þátt í samtölum á ensku
    Leiðsagnarmat, þar sem verkefni og vinna nemenda eru metin jafnt og þétt.