Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1450696714.11

    Viðskiptalögfræði
    VIFR3LF05
    2
    Viðskiptafræði
    Viðskiptalögfræði
    í vinnslu
    3
    5
    SB
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur fái innsýn í réttarreglurnar (alþjóðlegar og íslenskar) og geri sér grein fyrir hvernig þær verka á samskipti manna og öðlist almenna fræðslu um íslenska lögskipan. Lögð er áhersla á frumkvæði, ábyrgð og færni í vinnu með gögn af ýmsum toga ásamt færni í samskiptum. Nemendur öðlist hæfni í meðferð heimilda og geti beitt tilteknum hugtökum varðandi lausnir á lögfræðilegum álitaefnum og geti rökstutt mál sitt í tengslum við þau. Lögð er rík áhersla á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð og að námið nýtist sem góður undirbúningur fyrir frekara nám eða störf. Kennslan byggist einkum á verkefnavinnu nemenda og skilum á verkefnum og lögð er áhersla á að nemendur verði færir í rökhugsun.
    Engar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • lögfræði sem fræðigrein
    • • nokkrum grundvallarhugtökum lögfræðinnar
    • • stjórnskipun Íslands
    • • mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar
    • • stjórnsýslulögunum
    • • réttarheimildum íslensks réttar
    • • dómstólum landsins
    • • réttindum og skyldum á vinnumarkaðnum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • skilja notkun ákveðinna lykilhugtaka lögfræðinnar
    • • móta og setja fram texta, lögfræðilegs eðlis, á ýmsan máta og átta sig á læsileika hans
    • • leysa verkefni þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og skiljanlegan hátt
    • • sjá álitaefnin út frá ólíkum sjónarhornum
    • • vinna sjálfstætt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • setja fram skoðanir sínar, taka þátt í rökræðum og túlka ólík sjónarmið á fordómalausan en gagnrýninn og ábyrgan hátt
    • • efla með sér hæfni til sjálfstæðis í hugsun og vinnubrögðum sem og samstarfs
    • • geta tekið afstöðu til siðferðilegra álitamála
    • • vera virkur borgari í lýðræðisþjóðfélagi
    • • bera virðingu fyrir mannréttindum
    • • taka þátt í að móta samfélag sitt
    • • geta unnið með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu
    • • nýta sér lögfræðilega þekkingu til lausnar í sérhæfðum, raunhæfum verkefnum
    • • beita gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn verkefna
    • • fylgja röksemdafærslu í mæltu máli og texta
    • • vinna sjálfstætt að verkefnum og vera ábyrgur í heimildarleit
    • • undirbúa frekara nám og störf
    Námsmat í áfanganum tekur mið af ástundun nemenda yfir önnina, verkefnavinnu og skilum, æfingum og skriflegu prófi í lokin.