Í áfanganum nýta nemendur sér alla þá kunnáttu sem þeir hafa aflað sér í fyrri textíl- og fatahönnunaráföngum. Hugmyndavinna og skissubók með söfnun upplýsinga. Nemendur vinna möppu með sköpun sinni. Unnið er að þremur alklæðnuðum sem allir þurfa að tengjast hugmyndafræði nemandans. Vettvangsferðir og verkefni nemenda verða til sýnis.
FATA2SH05, FATA2FF05 og FATA3FF05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
notkun hugmyndamöppu og skráningu á hugmyndum
sniðum og útfærslu þeirra
saumtækni
fatastílsfræðum og litum
tímasetningar á vinnuferli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrá hugmyndir og vinna ferilbók
vinna snið og útfæra þau
búa til ferilmöppu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna fatnað sem fer vel á þeim sem á að klæðast honum
til að setja saman þrjá alklæðnaði
tímasetja vinnu svo verkefnalok verði á réttum tíma