Í áfanganum munu nemendur kynnast náttúru Íslands. Lögð verður sérstök áhersla á náttúruna í nánasta umhverfi nemenda, bæði dýralíf og plöntulíf og farið í jarðmyndanir á svæðinu. Nemendur læra að bera virðingu fyrir náttúrunni.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
náttúrunni í nánasta umhverfi
helstu dýrategundum í náttúru Íslands
helstu plöntutegundum í náttúru Íslands
flekakenningunni
jarðmyndunum á Reykjanesskaganum
náttúruvernd
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að nafngreina helstu plöntur
að nafngreina algenga fugla
að greina í sundur algengar jarðmyndanir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
njóta náttúrunnar
umgangast náttúruna af virðingu
Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.