Í áfanganum er fjallað um Ísland sem lýðræðislegt samfélag. Að áfanganum loknum skulu nemendur hafa almenna þekkingu á stjórnkerfi Íslands, helstu atvinnuvegum landsins og uppbyggingu íslensks samfélags. Nemandur skulu einnig geta metið mikilvægi helstu atvinnugreina landsins, mikilvægi stjórnmálaþátttöku og hlutverk sitt sem borgari í lýðræðisríki.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
stjórnkerfi Íslanda og uppbyggingu þess
helstu kerfum stjórnsýslunnar s.s. menntakerfi, heilbrigðiskerfi og félagsmálakerfi
helstu atvinnuvegum landsins
ólíkum hugmyndum um forgangsröðun verkefna í samfélaginu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta upplýsingar sem fram koma í fjölmiðlum og tengjast stjórnkerfi landsins
átta sig á mikilvægi fjölbreytni í atvinnulífi og þátttöku sem flestra í því
sjá tengsl kerfa innan stjórnsýslunnar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lifa og starfa í lýðræðis þjóðfélagi, þekki uppbyggingu þess og átti sig á mikilvægi þátttöku sem flestra
sjá hvernig stjórnmálaskoðanir hafa áhrif á ákvarðanatöku í stjórnkerfi landsins
Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.
Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.