Í áfanganum munu nemendur kynnast forritun í gegnum leikjaforritun. Nemendur munu kynnast því hvernig hægt er að nota mismunandi verkfæri og búa þannig til sín eigin forrit. Nemendur læra að þekkja einföld forritunar-hugtök og geta lýst í stuttu máli hvað forritun er og hvernig hún virkar.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skilyrðissetningum, föllum og breytum
uppbyggingu einfaldra forrita
hvernig kóði verður að forriti
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
notkun falla í forritun
notkun skilyrðissetninga og Boolean gilda í
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta búið til einföld forrit í því forritunarmáli sem kennt er í áfanganum
geta sett upp forritunarumhverfi (s.s. textaritil og þýðanda og/eða túlk eða samþætt þróunarumhverfi)
Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.