Nemendur leysa raunveruleg verkefni sem koma upp innan veggja skólans eins og viðhald á nemendavélum og uppsetning þeirra. Uppsetning á stýrikerfum í gegnum Virtualbox skoðuð og framkvæmd. Nemendur læra uppsetningu og rekstur á Windows Small Business Server. Nemendur kynnast uppbyggingu Windows Server, aðgangsstjórnun notenda og hópa ásamt reglustýringu. Exchange Server verður einnig settur upp og prentun yfir innra net verður skoðuð sérstaklega. Notendaforrit sem notuð eru við daglegan rekstur netkerfa skoðuð
USFS1NS03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig Active Directory virkar
hvernig setja á upp Active Directory á netþjónum
hvernig best er að haga viðhaldi á Active Directory
öryggismálum er snerta Active Directory
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
hönnun á Active Directory
uppsetningu á Active Directory og öllum þáttum þess
kerfisstjórn með Active Directory
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja upp nýtt Active Directory á netþjóni
viðhalda Active Directory á netþjóni
vera fær um að beita Group Policy á innra neti
Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.