Í þessum áfanga er farið yfir öryggismál almennt. Fjallað er um hollustuhætti og vinnuvernd, meðferð hættulegra efna, vinnustellingar (hreyfifræði), atvinnusjúkdóma, helstu orsakir vinnuslysa og hvernig brugðist er rétt við á slysstað.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hættum sem steðjað getur að starfs-mönnum í netagerð og um borð í skipum
viðbrögðum við slysum á vinnustað
öllum öryggisbúnaði á vinnustað
öryggisráðstöfunum vegna elds, stað-setningar slökkvitækja, flóttaleiðum, björgun manna, staðsetningu og með-ferð gaskúta og annarra eldfimra og sprengifimra efna
notkun persónuhlífa við vinnu
tilkynningaskyldu til Vinnueftirlits
skipulagi vinnustaðar með tilliti til öryggismála, varðandi rýmingu og neyðarútganga, gas og efni, loftræsingu og lýsingu
ábyrgð atvinnurekanda, yfirmanna og starfsmanna
hlutverki öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða
vinnuumhverfisvísa Vinnueftirlits (málmsmíði)
leiðbeiningum og öryggiskröfum vinnu við vélar og notkun áhalda
rafmagnsfræði: Straumur, spenna, viðnám, stærðir og mælieiningar. Riðstraumur, jafnstraumur. Hitaáhrif lagna og véla
áhrifum á rafmagns á mannslíkamann
einföldum rafmagnsteikningum og táknum þeirra
helstu verkfærum rafiðna
algengustu mælitækjum rafiðna
umhirðu rafgeyma og hleðslu
öryggisráðstöfunum og umgengisreglum varðandi vinnu í nálægð rafmagns
takmörkum sem vinnu ófaglærðra eru sett við rafleiðara og rafmagnstæki
Stoð- og hreyfikerfi líkamans og álagstakmörkunum
tengslum hönnunar og útfærsla á vinnuaðstöðu annars vegar og atvinnusjúkdómum í stoð- og hreyfikerfi hins vegar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota þær persónuhlífar sem áskyldar eru við vinnu
bregðast rétt við slysum og eldsvoða á vinnustað. Fara að verklagsreglum og rýmingaráætlun í viðlögum
tileinka sér ábyrgð í umgengni á vinnustað
nota vinnuumhverfisvísa við mat á öryggi vinnustaða
fara að öllum leiðbeiningum um vélar og tæki
tengja rafleiðara af öryggi, leggja kapla samkvæmt öryggiskröfum og forðast bleytu. Kanna ástand rafleiðara og tilkynna frábrigði
lesa af rafmagnsteiknunum í töfluskáp og umgangast lekaliða og vör af öryggi
beita skrúfjárni, saxi, endahulsutöng
beita spennu- og straummæli (fjölsviðsmæli)
hirða um rafgeyma í tækjum sem nemandi vinnur með. Tengja og aftengja rafgeyma við hleðslu
fara að öllum varúðarráðstöfunum í umgengni við rafmagnstæki, vélar og lagnir
beita sér á réttan hátt í leik og starfi til að reyna hæfilega á hrygg, liði og vöðva
gera ráðstafanir varðandi skipulagningu og aðbúnað á vinnuaðstöðu til að lagmarka hættu á skaða stoð- og hreyfikerfis
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lágmarka hættu á ofreynslu og slysum vegna rangrar líkamsbeitingar
skilja og virða kröfur um persónuhlífar, vinnuvernd, öryggi og umhverfi
tileinka sér vandaða um-gengnishætti á vinnustað, virðingu fyrir sjálfum sér, samstarfsmönnum og umhverfi
gera sér grein fyrir að snyrtimennska á vinnu-stað eykur starfsöryggi og framleiðni
virða þau takmörk sem nemanda eru sett eru varðandi vinnu við vélar, flutningatæki, rafmagn og hættuleg efni
Áfanganum lýkur með prófi og mati á verkefnum gerðum á önninni.