Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1453991587.29

    Iðnteikning netagerðar - Tölvuteikning
    NITN3TT05(NB)
    1
    Iðnteikning netagerðar
    Tölvuteikning
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    NB
    Nemendur þjálfast í að teikna veiðarfæri á tölvu. Farið er yfir allar reglur sem gilda um teiknun veiðarfæra. Teiknaðar eru mismunandi gerðir veiðarfæra en einkum er lögð áherslu á að teikna vörpur og nætur.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • viðmót og virkni forrita sem notuð eru til veiðarfæra-teikninga, almenn og sérhæfð
    • yfirfæra staðal veiðarfærateikninga, ÍST 106, á tölvuteikningu
    • táknum til að skilgreina ein-staka hluta neta í veiðarfærum
    • aðferðum til mælinga á línulengdum neta
    • reikningsaðferðum hlutfalla til að fá réttar breiddir og lengdir á veiðarfærateikningar
    • reglum um miðjusetningu teikninga
    • töflum sem sýna mismunandi halla á útlínum teikninga í samræmi við skurð neta
    • útfærslu afstöðumynda á teikningum
    • grunnatriðum þrívíðrar teikningar og teikniforrits
    • prentskipunum fyrir mismunandi stærðir pappírs
    • reglum um frágang, vistun og breytingar teikninga
    • hugtökunum verkefni, verkþáttur, verkþáttaröð og efnislisti
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota forrit til veiðarfærateikninga
    • nota viðeigandi staðla við teiknivinnu og stöðluð tákn úr táknasafni til merkinga. Merkja heiti einstakra hluta inn á teikningar þar sem við á
    • setja tákn á teikningar á réttum stöðum.
    • teikna mynd sem sýnir viðeigandi línu-lengdir. Mæla réttar lengdir á línum eftir teikningum
    • nota reikniaðferðir við teiknivinnu. Reikna stærðir á stykkjum og heildarstærð teikninga í réttum hlutföllum með tilliti til mælikvarða
    • miðjusetja teikningar og texta á pappír
    • nota töflur til að sýna viðeigandi halla eftir gerðum skurða. Meta hvort mismundi hlutar teikninga eru með sama halla í skurði
    • teikna afstöðumyndir veiðarfæra frá öllum hliðum
    • geta snarað tvívíðri mynd í þrívíða
    • setja upp prentara í viðeigandi vinnuham. Meta frágang og gæði prentaðra teikninga
    • setja upp verkþáttaröð eftir teikningu. Meta efnisnotkun hvers verkþáttar og gera efnislista. Gera efnis-, tíma- og kostnaðaráætlun eftir teikningum og efnislistum. Framleitt veiðarfæri samkvæmt eigin teikningum og verkefnislýsingum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta gæði teikninga og verkefnislýsinga sem fyrirmæli til að vinna eftir
    • miðla upplýsingum til samstarfsmanna og viðskiptavina með teikningum og útskýra verkáætlun.
    Áfanganum lýkur með prófi og mati á verkefnum gerðum á önninni.