Nemendur læra um lög og reglugerðir er varða lágmarksmöskvastærðir og umbúnað veiðarfæra og kynnast vel veiðileyfakerfi og stjórnun og eftirliti sjávarútvegsráðuneytisins um veiðar við Ísland.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
reglugerð um lágmarksmöskvastærðir togveiðarfæra: Þorsktrolla, karfatrolla, dragnóta, rækjutrolla, humartrolla
reglugerð um lágmarksmöskvastærðir lagneta: Þorskaneta, ýsuneta, grásleppuneta og síldarneta
reglugerð um lágmarksbil á milli rimla í skiljum: Rækjuskilju og bolfiskskilju
reglugerð um slitvara á togveiðarfærum: Húðir, mottur og net
reglugerð um þenslugjarðir og styrktargjarðir á togveiðarfærapokum
reglugerð um möskvamælingar og framkvæmd þeirra
opinberum stofnunum sem framfylgja lögum og reglugerðum um gerð og uppbyggingu veiðarfæra. Viðurlögum við brotum á reglum
heilmöskva og innanmáli á möskva
heitum einstakra hluta í möskva
umferðum á alin í nótaneti
legggluggum í togveiðarfærum
möskvamælispjöldum
öðrum áhöldum til möskvamælinga
uppsetningu og innihaldi mælingarskýrslu fyrir net
veiðisvæðum eftir veiðiskap og veiðarfærum
lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006
kvótakerfinu, uppbygging þess og helstu álitamálum
reglum um losun úrgangsefna, sorps og ónýtra veiðarfæra í sjó
reglum um tilkynningaskyldu á töpuðum veiðarfærum í íslenskri landhelgi
ákvæðum laga um ábyrgð og refsingu fyrir brot á lögum varðandi fiskveiðar og veiðarfæri
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
sjá í fljótu bragði hvort möskvastærðir neta séu réttar með tilliti til leyfilegra lágmarka og gera viðeigandi mælingar
sjá hvort rimlabil sé rétt samkvæmt reglugerð og gera viðeigandi mælingar
athuga hvort slitvarar séu rétt staðsettir á veiðarfærinu samkvæmt reglugerð
mæla staðsetningu þenslugjarða og styrktargjarða
mæla möskvastærðir skv. reglum þar að lútandi
tilkynna brot á reglum og reglugerðum til viðkomandi stofnana á formlegan hátt með tilvísun í mælingaskýrslur
skilgreina mun á heilmöskva og innanmáli möskva
nota heitin við mælingar á möskva og skilgreiningu á neti
nota mælikvarðann við mælingar og athuganir á netum
skilgreina möskvastærðir og staðsetningu þeirra í veiðarfæri
nota möskvamælispjöld til möskvamælinga og skrá niðurstöður
nota lóð, stikur og þrýstimæla til möskvamæling og skrá niðurstöður
rita skýrslu um mælingar
afla upplýsinga um veiðisvæði á interneti
rökstyðja mál sitt og ákvarðanir varðandi veiðarfæri með tilvísun í lög um stjórnun fiskveiða
fara að reglum um úrgangsefni og tilkynna frábrigði til viðeigandi stofnana á formlegan hátt
tilkynna frábrigði til viðeigandi stofnana á formlegan hátt
vitna í lög og reglugerðir máli sínu til stuðnings
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja tilgang regluverks sjávarútvegs og veiða og taka þátt í rökræðum og skoðanaskiptum um málið
taka ákvarðanir með tilvísun í opinber fyrirmæli (lög, reglugerðir)
útskýra og rökstyðja niðurstöður mælinga fyrir viðskiptavinum og samstarfsmönnum með tilvísun í opinber fyrirmæli
meta og útskýra mögulegar afleiðingar af notkun ólöglegra veiðarfæra fyrir fiskistofna og annað lífríki sjávar með hliðsjón af opinberum fyrirmælum