Farið er yfir helstu hafstrauma við Ísland, hitastig sjávar og aðra eðlisþætti sjávar við Ísland með tilliti til lífsskilyrða íslenskra sjávarbúa. Fjallað um líffræði þörunga, hryggleysingja, fiska og sjávarspendýra við landið og gerð grein fyrir helstu aðferðum sem notaðar eru við stofnstærðarmat. Leitast skal við að tengja saman umhverfisþættina og afrakstursgetu stofnanna
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
heildarmynd hafs og sjávarstrauma í hnattrænu samhengi. Samspil lands, sjávar og gufuhvolfs með hliðsjón af hita, uppgufun, úrkomu og straumum
heildarmynd af hafsbotni umhverfis Ísland í hnattrænu samhengi
sérstöðu landgrunns og djúpsævis umhverfis Ísland
eðlisþáttum sjávar; hitastigi, uppleystum efnum og eðlisþyngd. Áhrifum ljóss og tærleika sjávar á hitastig og lífríki. Áhrifum efna- og eðlisþátta sjávar á lífríki
hafstraumum og sjávarfallastraumum umhverfis Ísland, uppruna þeirra og orsökum. Hugtökunum strauma- og hitaskilum. Öldumyndun og hreyfing
hafís, lagnaðarís og rekís, myndun og eðliseiginleikar. Áhrif hafíss á lífríki sjávar og fiskveiðar
lífríki í sjónum í Norður-Atlantshafi og sérstöðu hafsvæðisins umhverfis Ísland
áhrifum hafstrauma og sjávarfallastrauma á lífríki og veiðar við Ísland. Samspili lands og sjávar umhverfis Ísland; áhrifum lands og ferskvatns á veiði- og hrygningarslóðir, næringarefni, sjávarhita og strauma. Botngerðum við Ísland frá fjöru til djúpsævis með tillit til fiskgengdar, hrygningarslóða, veiða og veiðarfæra
helstu kenningum um loftslagsbreytingar á jörðinni, orsökum þeirra, áhrifum af bráðnun jökla, breytingum á sjávarstöðu á heimsvísu og strauma
kenningum um afleiðingar hækkandi sjávarhita á fiskigengd og fiskveiðar við Ísland
nytjastofnum við Ísland, hegðunar-mynstri (flökkustofnar og staðbundnir stofnar, hrygningar-svæði, uppeldissvæði). Stofn-stærðum og aflamagni nú og í sögulegu samhengi
aflamagni tegunda, hlutfalli í landsframleiðslu og útflutningi eftir fiskitegundum og vöru, nú og í sögulegu samhengi. Helstu mörkuðum eftir vörutegundum
hafrannsóknum og fiskifræðilegum rannsóknum á hafsvæðum umhverfis Ísland. Rannsókna- og eftirlitsstofnunum, aðferðum og umfang. Ákvörðunum og eftirliti við nýtingu fiskistofna og stjórnun fiskveiða
hugtakinu sjálfbær þróun í því samhengi, hættur sem steðja að lífríkinu af völdum manna og náttúru. Viðbrögðum við breytingum og mati á orsökum þeirra
skaða sem veiðarfæri og eldiskvíar í sjó geta valdið á lífríki og umhverfi og ráðstafanir til að fyrirbyggja hann
hegðun veiðarfæra í ljósi aðstæðna í sjó; strauma, hitastigs, dýpis, botngerðar
mikilvægi þekkingar á aðstæðum í sjó og nýting hennar við hönnun og framleiðslu veiðarfæra
förgun úreltra veiðarfæra og kostnaði
endurvinnslu veiðarfæra og kostnaði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
afla upplýsinga og auka þekkingu sína á eðlisþáttum sjávar og vistfræði hafsins. Öðlast yfirsýn
hagnýta upplýsingar á eðlisþáttum sjávar og vistfræði hafsins við hönnun og framleiðslu veiðarfæra
leggja mat á gögn, upplýsingar, rök sérfræðinga og viðskiptavina varðandi veiðarfæri, gerð þeirra, hönnun, uppbyggingu og efnisval með hliðsjón af náttúrulegum aðstæðum
afla upplýsinga og auka þekkingu sína á fiskifræðilegum þáttum sem varða veiðarfæri og tengsl þeirra við vistfræði hafsins. Öðlast yfirsýn.
agnýta upplýsingar á fiskifræðilegum þáttum og vistfræði hafsins við hönnun og framleiðslu veiðarfæra
leggja mat á gögn, upplýsingar, rök sérfræðinga og viðskiptavina varðandi veiðarfæri, gerð þeirra, hönnun, uppbyggingu og efnisval með hliðsjón af náttúrulegum aðstæðum
þróa, breyta og aðlaga veiðarfæri í samræmi við náttúrulegar aðstæður, upplýsingar sérfæðinga og viðskiptavina
meta kostnað við förgun og endurvinnslu úreltra veiðarfæra og reiknað með honum í verkefnisáætlunum og tilboðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
öðlast sjálfstraust og ábyrgðartilfinningu í ljósi þekkingar sinnar og leikni
leita til sérfræðinga í haf- og fiskifræði um úrlausnarefni varðandi samspil hafs og veiðarfæra
eiga samræður við sérfræðinga, viðskiptavini og samstarfsmenn um samspil umhverfis og veiðarfæra
spyrja spurninga og afla svara sem byggð eru á reynslu og vísindalegri þekkingu
öðlast sjálfstraust og ábyrgðartilfinningu í ljósi þekkingar sinnar og leikni
leita til sérfræðinga í haf- og fiskifræði um úrlausnarefni varðandi samspil hafs og veiðarfæra
eiga samræður við sérfræðinga, viðskipta-vini og samstarfsmenn um samspil umhverfis og veiðarfæra
spyrja spurninga og afla svara sem byggð eru á reynslu og vísindalegri þekkingu