Vinnustaðanám netagerðarnema er áfangi með námslokum á 2. þrepi og er 20 feiningar. Nemandi öðlast ákveðna þekkingu og hlýtur þjálfun í verklagi og vinnubrögðum á vinnustað. Má þar nefna flotun, benslun og viðgerðir.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
flotun
viðgerðum
benslun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
flota veiðarfæri
starfa að alhliða viðgerðum á veiðarfærum
bensla á net við ramma og styrktarlínur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera fær um að vinna sjálfstætt og bregðast við margvíslegum aðstæðum í starfi