Vinnustaðanám netagerðanema er áfangi með námslokum á 3. þrepi og er 10 feiningar. Nemandi öðlast ákveðna þekkingu og hlýtur þjálfun í verklagi og vinnubrögðum á vinnustað. Í þessum áfanga er farið í veiðiferð og nemendur fá að kynnast tog- og hringnótaveiðum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
togveiðum
hringnótaveiðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meðhöndla veiðarfæri um borð
vinna á dekki
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera fær um að vinna sjálfstætt og bregðast við margvíslegum aðstæðum í starfi