Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1458205661.18

    Fallafræði
    STÆR3FF05
    124
    stærðfræði
    Föll og ferlar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Lögð er áhersla á að nálgast fyrirbæri í náttúrunni og í samfélaginu með opnum huga hvað varðar stærðfræði. Til þess eru nemendur látnir vinna með runur og raðir, vísis- og lograföll og diffrun einfaldra falla. Unnið verður með fallahugtakið og farið yfir nokkur helstu föll auk þess sem samsetning falla er kynnt. Diffrunarreglurnar eru æfðar og fundin staðbundin útgildi og beygjuskil ásamt orðadæmum. Kennslan fer jöfnum höndum fram með fyrirlestrum kennara, umræðum, einstaklings- og hópavinnu nemenda. Gerðar eru kröfur um að nemendur vinni verkefni heima og standi skil á þeim annað hvort í kennslustund eða með því að skila verkefnum skriflega. Í kennslustundum eru notaðar reiknivélar. Einnig eru verkefni leyst með stærðfræðiforritum t.d. forritinu GeoGebra og Excel.
    STÆR2HJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • runum og röðum
    • skilgreiningar- og myndmengi falla, samsettum föllum og ferlum falla
    • veldisföllum, margliðum, ræðum föllum, vísisföllum og lograföllum
    • diffrun falla, diffrun margfeldis og kvóta ásamt diffrun samsettra falla
    • hagnýtingu diffrunar (útgildi, einhallabil, beygjuskil og sveigja ferils)
    • línulegri bestun
    • myndrænni framsetningu ójafna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota stærðfræði við lausn verkefna sem tengjast samfélaginu
    • þekkja helstu föll og samskeytingu þeirra
    • leysa vísis- og lograjöfnur
    • leysa ójöfnur þar sem koma fyrir ræð föll
    • diffra föll, margfeldi þeirra, kvóta og samsett föll
    • finna staðbundin útgildi og beygjuskil
    • nota diffurreikning til að leysa hámörkunarverkefni
    • leysa einföld dæmi í línulegri bestun
    • lita lausnarsvæði ójafna á grafi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • setja sig inn í og túlka útskýringar og röksemdir annarra
    • skrá lausnir sínar skipulega og geta rökstutt þær, skipst á skoðunum um þær við aðra og útskýrt hugmyndir sínar
    • skrá lausnir sínar skipulega og geta rökstutt þær, skipst á skoðunum um þær við aðra og útskýrt hugmyndir sínar
    • vinna með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu t.d. afleiðu falls og ferils þess
    • beita skipulegum aðferðum við lausnir þrauta úr kunnuglegu samhengi og útskýra aðferðir sínar.
    • klæða hversdagsleg verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa þau og túlka lausnirnar
    • fylgja eftir og skilja röksemdir í texta og beita einföldum röksemdum
    Námsmat er samsett úr vinnueinkunn og skriflegu lokaprófi í lok annar.