Megináherslan er lögð á viðfangsefni sem tengjast því að vera manneskja í samfélagi, nemandi í framhaldsskóla og að móta sér framtíðarsýn.Unnin eru margvísleg verkefni um málefni sem brenna á ungu fólki. Verkefnin eru ýmist unnin í hópavinnu eða á einstaklingsgrundvelli. Mikil áhersla lögð á góða hegðun, jákvæð samskipti innan hópsins, vinnusemi og ástundun.
Engar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi þess að bera virðingu fyrir skoðunum og lífsgildum annarra
leiðum til að efla sjálfsmynd og eiga góð samskipti við aðra
kostum góðs og heilbrigðs félagslífs
því sem þarf til að vera virkur og ábyrgur þegn í samfélaginu
mikilvægi jákvæðrar framtíðarsýnar
námskröfum skólans og árangursríkum námsaðferðum
rekstri heimila
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja sér raunhæf framtíðarmarkmið varðandi nám og starf
stunda árangursríkt nám í framhaldsskóla
efla félagsþroska sinn
eiga góð samskipti við aðra
hlýða lögum og reglum í samfélaginu
taka ábyrgð á gerðum sínum
að tjá sig í stórum eða litlum hópum
áætlanagerð varðandi heimilisrekstur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
efla styrkleika sína og vinna að því að þeir nýtist sem best
geta skipst á skoðunum, tekið þátt í rökræðum og fylgt málum eftir
taka ábyrgð á eigin fjármálum
geta lagað sig að margbreytilegum aðstæðum í lífi og starfi
vera virkur og ábyrgur þátttakandi í lýðræðislegu samfélagi
Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.