Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1460474897.92

    Netkerfi lítilla fyrirtækja
    NETK1SV03(SS)
    3
    Netkerfi
    LAN og WAN, Víðnet, staðarnet
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    SS
    Markmið áfangans er að nemandi geti sett upp og haft umsjón með tölvuumhverfi í litlu fyrirtæki, þekki helstu íhluti staðar- og víðneta t.d. Switch, Hub og router ásamt að skilja tilgang þeirra og virkni í megindráttum. Kynning á hugtökunum staðarnet, LAN, og víðnet, WAN, hlutverk þeirra og tilgang þekki mismunandi nethögun (Topology) tölvulagna. Nemendur búa til netsnúrur og læra mismuninn á notkun beinna og krossaðra tengisnúra við tengingu mismunandi netíhluta. Farið er í IP–vistföng, (IP address, Subnetmask, Default gateway, Nameserver) og muninn á notkun MAC-vistfangs og IP-vistfangs. Nemendur tengja útstöð við staðarnetið og setja upp allar víðnetsstillingar. Notaðar eru einfaldar aðferðir til að rekja bilanir á netsamböndum (ping, ipconfig, tracert o.fl.). Farið er hægt yfir námsefnið til að koma til móts við nemendur.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugtökunum staðarnet, LAN, og víðnet, WAN
    • mismunandi nethögun (Topology) og tölvulögnum
    • IP–vistföng, (IP address, Subnetmask, Default gateway, Nameserver) og muninn á notkun MAC-vistfangs og IP-vistfangs
    • stigskiptingu netkerfis
    • notkun beinna og krossaðra tengisnúra við tengingu mismunandi netíhluta.
    • einföldum aðferðum til að rekja bilanir á netsamböndum (ping, ipconfig, tracert o.fl
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • að tengja útstöð við staðarnetið og setja upp allar víðnetsstillingar
    • að búa til nettengisnúrur bæði beinar og krossaðar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • setja upp og hafa umsjón með tölvuumhverfi í litlu fyrirtæki
    • að taka MCA próf nr:98- 366 hjá viðurkenndri prófamiðstöð
    Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.