Ferðalandafræði Íslands: Menning, náttúra og staðhættir
Samþykkt af skóla
2
3
SS
Í áfanganum er almennt fjallað um helstu ferðamannastaði í byggð og óbyggð á Íslandi, aðstöðu þeirra og þjónustu sem er í boði. Þá er einnig fjallað um ferðamanninn sjálfan og hverju hann sækist eftir á ferðalagi um landið. Sérstök áhersla er lögð á ferðamöguleika og framboð íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í tengslum við einkenni þjóðlífs og náttúru sem aðdráttarafl í ferðaþjónustu. Fjallað er sérstaklega um samskipti ferðaþjónustunnar við umhverfi sitt og skoðað hvernig ákveðin landnýting og ýmis afþreying í greininni getur farið saman. Í áfanganum er lögð áhersla á leikni í notkun helstu ferðahandbóka og landakorta auk þess að nemendur hljóta aukna þekkingu á helstu upplýsingamiðlum um land, þjóð og ferðaþjónustu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
starfsumhverfi og aðstæðum fyrir íslenska ferðaþjónustu
Íslandi með augum ferðamannsins
áhrifum ferðamennsku á íslenskt samfélag og umhverfi
ferli skipulagningar og undirbúnings ferða um Ísland fyrir bæði hópa sem og einstaklinga
fjölbreytileika ferðamanna og ólíkra þarfa þeirra í ferðaskipulagningu með tilliti til markhóps
vegakerfinu og ferðamöguleikum í byggð og óbyggð
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipuleggja ferðir fyrir mismunandi hópa með mismunandi þarfir
skipuleggja ferðir með tilliti til fjarlægðar, vegalengda og þjónustuframboðs
nýta handbækur, bæklinga og aðra miðla til upplýsingaöflunar
lesa landa- og rafræn kort sem og aðrar upplýsingaveitur fyrir ferðaþjónustu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leita upplýsinga um land og þjóð og fram á þjónustu fyrir ferðamenn hér á landi
nota hin ýmsu landakort og ferðagögn til skipulagningar ferðalaga og upplýsingaöflunar fyrir ferðamenn
skipuleggja ferðir fyrir ákveðna hópa eða einstaklinga
að gera ferðir þeirra sem kjósa Ísland sem áfangastað sem ánægjulegastar