Í áfanganum verður lögð áhersla á að nemendur kynnist bókmenntum frá miðöldum og fái þannig innsýn í menningararf þjóðarinnar. Nokkrir textar frá þessum tíma verða lesnir og unnið með þá. Nemendur læra að þekkja forna bragarhætti og að þekkja einkenni helstu bókmenntagreina frá þessum tíma.
ÍSLE2LR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi miðaldabókmennta fyrir íslenska menningu
þeim menningararfi sem nútíma bókmenntir byggjast á
helstu bókmenntagreinum til 1550
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina einkenni helstu bókmenntagreina frá miðöldum
lesa miðaldatexta sér til gagns og ánægju
greina og túlka miðaldatexta af skynsamlegu viti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera öðrum grein fyrir upplifun sinni og túlkun á miðaldabókmenntum
gera sér grein fyrir samhengi íslenskrar bókmenningar frá öndverðu og til siðaskipta
Notast verður við fjölbreyttar námsmatsaðferðir en í því felst m.a. að nemendur vinna með
námsefnið á margvíslegan hátt og leysa ýmis konar verkefni bæði skriflega og munnlega. Gera má viðveru
og virka þátttöku að skilyrði til að standast áfangann.