Áfanginn er kynning á lífeðlislegri sálfræði. Fengist er við tengsl lífeðlifræðilegra og
sálfræðilegra þátta. Fjallað er um taugakerfið: Netkerfi, taugasálfræðilega virkni, heilastöðvar,
úttaugakerfi og byggingu og starfsemi taugafrumunnar og taugaboðefni. Einnig kynnast
nemendur þeim hlutum hormónakerfisins sem þykja sálfræðilega áhugaverðastir. Samspil erfða
og umhverfis er skoðað. Nemendur kynnist rannsóknaraðferðum í lífeðlislegri sálfræði og
vinnubrögðum við gerð rannsóknarskýrslna.
SÁLF2HS05 eða 20 f-einingar á 2 eða 3 hæfnisþrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
staðakenninguna og netkerfisnálgunina í lífeðlislegri sálfræði
helstu heilastöðvar
byggingu og starfsemi taugafrumunnar
boðefni
hormónakerfi
rannsóknaraðferðir í lífeðlislegri sálfræði
þekki algeng ensk hugtök í lífeðlislegri sálfræði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
í lesa sálfræðitexta
ræða sálfræði
beita aðferðafræði sálfræðinnar
bera saman hugtök og kenningar
hanna rannsóknir
skrifa rannsóknarskýrslur
geti teiknað einfaldar skýringarmyndir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
til að setja sálfræði í samhengi við einkalíf samfélag og fræðilegt starf
tjá sig skipulega í ræðu og riti og tekið þátt í umræðum um lífeðlislega sálfræði
geta stundað háskólanám sérstaklega í sálfræði, félagsvísindum, lífeðlisfræði og læknisfræði
Skal vera fjölbreytt og skal reyna á þekkingu á sálfræðikenningum og leikni í aðferðum sálfræðinnar.