Meginefni áfangans er algebra, föll og hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi. Efnisþættir sem teknir verða
fyrir í áfanganum eru: bókstafareikningur, veldi og rætur, jöfnur af öðru stigi, könnun annars stigs ferla
(fleygboga) í hnitakerfi, meðferð algebrubrota margliðudeiling, ójöfnur af fyrsta og öðru stigi og hornaföll
í rétthyrndum þríhyrningi. Föll: fallhugtakið er innleitt og nokkur algeng föll kynnt.
Nemandi hafi lokið stærðfræði með hæfnieinkunn B+ úr grunnskóla eða hafi lokið STÆR2AR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðureglum talna og bókstafareiknings
þáttun, brotum og brotabrotum
grunnhugtökum mengjafræði
jöfnum og ójöfnum
rótum, ræðum veldum og tölugildum
hnitakerfinu, jöfnu beinnar línu og fleygboga
hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi og einslögun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota einfaldan mengjareikning
nota veldi og rætur, helstu veldareglur og vinna með brotna veldisvísa
lengja, stytta, deila, margfalda og leggja saman algebrubrot
finna núllstöðvar, samhverfás og útgildi fleygboga, teikna þá í hnitakerfi og finna skurðpunkta þeirra við beinar línur og aðra fleygboga
leysa annars stigs jöfnur
leysa ójöfnur af fyrsta og öðru stigi, m.a með hjálp formerkjatöflu
deila með margliðudeilingu og nota hana til að þátta margliður
vinna með fallhugtakið
vinna með einslögun og hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja upp margskonar verkefni með táknmáli stærðfræðinnar og leysa þau
beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna og rökstyðja aðferðir sínar
skrá lausnir sínar skipulega og skiptast á skoðunum um þær við aðra
átta sig á tengslum aðferða við framsetningu
beita frumkvæði, innsæi og frumleika við lausn verkefna
Byggist á fjölbreyttu námsmati, m.a. heimaverkefnum, hópverkefnum, smærri verkefnum, prófum og virkni í tímum