Snyrtivörur og efnafræði þeirra, áhrif og virkni helstu lykilefna
Samþykkt af skóla
2
2
FB
Í áfanganum er farið í grunnsnyrtivörur, tilgang þeirra og virkni. Áhersla er lögð á skilning á efnasamsetningu og eiginleikum snyrtivörunnar og átta sig á og greina notkunarsvið þeirra. Farið er yfir reglugerðir varðandi framleiðslu, merkingu og meðhöndlun snyrtivara.
Almennt grunnnám samkvæmt skólanámskrá.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnflokkun snyrtivara eftir tilgangi hennar í meðhöndlun húðar hvort sem er til heimanota eða í snyrtimeðferð
efnum til húðhreinsunar og geti skilgreint mismunandi eiginleika og notkunarsvið þeirra s.s hreinsimjólk, hreinsifroðu, hreinsisápu eða hreinsivatn.
mismunandi kremum, eiginleikum þeirra og virkni með vísun í lykilinnihaldsefni þeirra
mismunandi serumum, tilgangi þeirra og virkni með vísun í lykilinnihaldsefni þeirra
víxlverkun grunnsnyrtivara og hvernig þær eru notaðar saman til að ná sem bestum árangri
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
flokka hreinsiefni eftir húðgerðum og notkunarsviði þeirra
flokka krem og serum eftir húðgerðum og ráðleggja notkun þeirra til að ná sem bestum árangri
velja húðvöru eftir efnisvirkni hennar og tilgangi fyrir mismunandi húðgerðir að ráðleggja rétta notkun snyrtivara
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
velja viðeigandi hreinsiefni fyrir ólíkar húðgerðir
velja krem og serum með tilliti til sérvirkni þeirra fyrir ólíkar húðgerðir og fært fyrir því haldgóð rök fyrir valinu
Símat (verkefnavinna, kannanir og frammistaða í kennslustundum)