Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1466081555.72

    Samvinna nema, byrjunaráfangi til sveinsprófs í snyrtifræði
    SAVN1BA01(FB)
    1
    Samvinna nema
    Aukaþjálfun í verklegri snyrtifræði
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    FB
    Í áfanganum fá nemendur aukna þjálfun, undir leiðsögn útskriftarnemenda, í þeim verkþáttum sem þeir hafa tileinkað sér í öðrum áföngum. Markmiðið er að auka getu nemenda til að ná námsmarkmiðum áfanga sem eru verklegir á snyrtibraut.
    1. önn í verklegu. Samhliða áföngum samkvæmt skólanámskrá.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi háttvísi í framkomu og hæfni í móttöku í öllum samskiptum við viðskiptavini
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna þá verkþætti sem þeir hafa tileinkað sér í öðrum verklegum áföngum á snyrtibraut
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • vinna í hóp til þess að auka skilning á verkþáttum og auka samskiptahæfni
    • hafa skilning á vönduðum vinnubrögðum, háttvísri og fagmannlegri framkomu
    Vinnueinkunn á önn • Krafa er um háttvísi í framkomu. • Vinnufærni nemandans er m.a. metin á önninni með jafningamati á verklegri vinnu þar sem nemandi vinnur á utanaðkomandi módelum. • Ástundun í kennslustundum • Hæfni er metin út frá samvinnu nemenda og skoðanaskiptum