Handsnyrting framhaldsáfangi til sveinsprófs í snyrtifræði
HASN3BA03(FB)
2
Handsnyrting til sveinsprófs í snyrtifræði
Handsnyrting, annar áfangi
Samþykkt af skóla
3
3
FB
Í þessum áfanga læra nemendur nánar greiningu handa og nagla. Dýpkuð er þekking á snyrtingu handa og nagla með áherslu á húð- og naglavandamál og snyrtivörur tengdar þeim. Nemendur þekkja forsendur fyrir vali á mismunandi meðferð fyrir hendur og neglur og öðlast viðbótarþjálfun í verklegri hand¬snyrtingu. Nemendur læra um djúphreinsun húðar á höndum og um parafínvax, notkun þess við handsnyrtingu og aðra sérmeðhöndlun.
Samkvæmt námskrá skóla
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi vandamálum sem viðskiptavinur getur haft í húð og nöglum á höndum
efnisvali og meðferð fyrir viðskiptavin til notkunar fyrir mismunandi vandamál í húð og nöglum á höndum
efnisvali til heimanotkunar fyrir viðskiptavin með mismunandi vandamál í húð og nöglum á höndum
notkun djúphreinsandi efna og paraffinvax í handsnyrtingu
vörum sem notaðar eru fyrir sérmeðhöndlun í handsnyrtingu
mismunandi vörunotkun viðskiptavina
hve háttvísi í framkomu er mikilvæg og hæfni í móttöku viðskiptavina með faglegum hætti
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka á móti viðskiptavini og sýna háttvísi og fagmannlega framkomu
velja efni við hæfi og veitt viðskipavini handsnyrtingu innan þeirra tímamarka sem til er ætlast
greina nagla- og húðvandamál viðskiptavinar og gefið ráðleggingar við þeim
halda uppi samræðum við viðskiptavin á meðan á meðhöndlun stendur og fá upplýsingar um daglega notkun hans á snyrtivörum fyrir hendur
nota djúphreinsandi efni og paraffinvax í meðhöndlun á höndum
setja upp vinnuaðstöðu fyrir handsnyrtingu og ganga frá á viðeigandi hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sýna og hafa skilning á vönduðum sjálfstæðum vinnubrögðum og háttvísri og fagmannlegri framkomu
sýna sjálfstæð vinnubrögð í að greina húð og neglur viðskiptavinar
sýna sjálfstæð vinnubrögð í að setja upp vinnuaðstöðu fyrir ýmsar sérmeðhöndlanir í handsnyrtingu og frágang og sótthreinsun á viðeigandi hátt
velja meðferð á höndum sem hentar fyrir viðskiptavini
geta rætt við viðskiptavin um hvaða vörur hann notar fyrir hendur og hvernig hann notar þær og greint hvort eða hvað á vantar
gefa ráðleggingar sem henta viðskiptavini
bera ábyrgð á eigin námsframvindu
Vinnueinkunn á önn og lokapróf
• Krafa er um háttvísi í framkomu og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Vinnufærni nemandans er metin á önninni með leiðsagnarmati á verklegri vinnu þar sem nemandi greinir hendur, vinnur handsnyrtingu og velur efni til að vinna með, á utanaðkomandi aðilum.
• Verklegt lokapróf er handsnyrting þar sem þar sem prófdómari auk kennara metur hæfni nemanda. Nemandi sýnir hæfni í handsnyrtingu þar sem valin er sérmeðhöndlun sem hentar módeli og gefnar viðeigandi ráðleggingar, innan þeirra tímamarka sem til er ætlast.
• Þekking er metin með skriflegu lokapróf, skriflegum könnunum og verkefnum sem unnin eru heima.