Andlitsmeðferð framhaldsáfangi til sveinsprófs í snyrtifræði
ANMF3BB04(FB)
8
Andlitsmeðferð
Almenn húðmeðferð– bóklegur áfangi með tengingu í verklega þætti
Samþykkt af skóla
3
4
FB
Í áfanganum læra nemendur rafræna meðferð, um mismunandi tegundir strauma, eðli þeirra og virkni. Nemendur læra um djúphreinsun og mismunandi gerðir andlitsmaska. Farið er í spjaldskrárgerð, aukin færni fengin í að húðgreina og greina mismunandi húðeinkenni umfram grunnþætti og að velja ólíkar snyrtivörur fyrir mismunandi meðferðarþætti. Lögð er áhersla á rökstutt val meðferðar með tilliti til húðgerðar og frábendinga. Nemendur læra um tilgang og virkni rafefna, djúphreinsa og andlitsmaska og tengja við áfangann ANMF3BA07.
Byrjunaráfangar í andlitsmeðferð samkvæmt námsbrautarlýsingu snyrtibrautar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu húðeinkennum og flokkun húðlýta til að öðlast meiri færni í að skynja og greina mismunandi húðgerðir
spjaldskrárgerð og notkun hennar við húðmeðferð
helstu grunnlögmálum rafmagnsfræðinnar
ólíkum straumgerðum sem notaðar eru í húðmeðferð
rafmeðferð þ.e. jafnstraums og riðstraums, áhrifum þeirra og tilgangi í húðmeðferð efnum sem notuð eru í rafrænni meðferð
mismunandi hitagjöfum sem eru notaðir í húðmeðferð
áhrifum og notkun gufu og innrauðra geisla í húðmeðferð
mismunandi djúphreinsiefnum og helstu aðferðum við notkun þeirra
flokkun andlitsmaska, tilgangi þeirra og fjölbreyttum áhrifum á húðina
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
fylla út húðgreiningarblöð á fljótan og markvissan hátt og vinna eftir þeim verklega þætti meðferðar
rökstyðja val sitt á meðferðarþáttum og efnisvali meðferðar
ráðleggja um snyrtivörur á markvissan hátt þ.m.t velja krem og serum með tilvísun í innihaldsefni, lífvirkum áhrifum og tilgangi þeirra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera grein fyrir vali grunnsnyrtivara og efna í meðferð og rökstyðja það með vísun til starfsemi og uppbyggingu húðar
gera grein fyrir mismunandi tilgangi nuddhreyfinga sem nuddkerfi samanstanda af og
geti stutt það rökum með tilliti til starfsemi vöðva andlits, höfuðs og herða
aðgreina mismunandi húðgerðir og skynja mismunandi þarfir þeirra við meðhöndlun, val á snyrtivörum, mismunandi verkþáttum og ráðgjöf
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
Vinnueinkunn (verkefnavinna, kannanir, skyndipróf, frammistaða í kennslustundum) og lokapróf