Nemendur læra um algengustu húðsjúkdóma og orsakavalda þeirra. Lögð er áhersla á að nemendur fái innsýn í hugsanlega meðferð hjá lækni og hvernig slíkt fer saman við meðhöndlun á snyrtistofu.
Samkvæmt áfangalýsingu náms í snyrtifræði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einkenni á algengustu húðsjúkdómum, orsökum þeirra og helstu meðferðarúrræðum eins og akni, rósroða, exem og sóríasis, veirusýkingum, bakteríusýkingum og sveppasýkingum, kláðamaur og lús, litabreytingum í húð, aukningu og skorti á litarefnum húðar, helstu æðabreytingum í húð, naevi fæðingarblettum, góðkynja og illkynja æxlisvexti í húð, ofsakláða og hreisturhúð
forsendum fyrir vali á sérmeðferð fyrir einstakling og hugsanlegum víxlverkun þeirra við læknismeðferð
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina og þekkja helstu vísbendingar um húðeinkenni sem gætu hindrað snyrtimeðferðir
íhuga val á snyrtimeðferð og ráðleggingum um snyrtivörur fyrir mismunandi húðeinkenni og hafa tök á raunhæfum valkostum fyrir viðskiptavini til úrbóta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina hvort meðhöndla skuli húðeinkenni eða vísa viðkomandi til læknis
ákvarða raunhæfa snyrtimeðferð í þeim tilvikum sem við á og geta stutt það rökum til úrbóta fyrir húðina
ráðleggja um efni og vörur sem henta hverju húðeinkenni fyrir sig
hafa yfirsýn um meðferðarúrræði hjá lækni og hvort og hvernig slíkt fari saman við snyrtimeðferðir
Vinnueinkunn (tímaverkefni, verkefnavinna, skyndipróf og frammistaða í kennslustundum) og lokapróf