Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1470310401.94

    Upplýsingatækni og tölvunotkun
    TÖLV3UT05
    7
    tölvur
    miðla- og tæknilæsi, tölvur, upplýsingalæsi, upplýsingatækni
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn sérhæfir nemendur í uppsetningu á skýrslum fyrir háskólanám og meðferð tölulegra gagna og framsetningu á þeim. Í áfanganum er lögð rík áhersla á læsi og leikni sem tengist notkun tölvunnar í námi, lífi og starfi svo og hæfni til að vinna með upplýsingar og fjölbreytt gögn á ýmsan máta (upplýsinga-, miðla- og tæknilæsi). Í áfanganum vinna nemendur stórar og flóknar skýrslur á faglegan, skipulegan og sérhæfðan hátt. Í áfanganum er einnig unnið með gagnagrunna og flókin föll og aðgerðir í Excel sem nemendur þurfa að geta tengt. Lögð er áhersla á frumkvæði, ábyrgð og færni í vinnu með gögn af ýmsum toga ásamt færni í samskiptum, meðferð upplýsinga, sköpun og miðlun nýrrar þekkingar. Nemendur öðlist hæfni í meðferð heimilda og að virða höfundarétt. Þeir fá þjálfun í frágangi langra ritgerða og skýrslna með flóknum skipunum. Farið er ítarlega í gerð myndrita og útlitsmótun skjala, tölfræðiútreikninga, fjármálaföll, tíðnitöflur og fleiri flókin föll tekin fyrir. Unnin eru nokkur stór og flókin verkefni og stórt lokaverkefni . Farið er vel yfir mikilvægi frágangs og framsetningar á verkefnum. Lögð er rík áhersla á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð og að nemendur verði færir að nota tölvuna sem tæki í náminu og samþætti kunnáttu í upplýsingatækni við framsetningu efnis í öðrum námsgreinum. Kennslan byggist einkum á verkefnavinnu nemenda og skilum á verkefnum.
    TÖLV2RT05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu grunnatriðum gagnasafnsforritsins Access
    • helstu atriðum varðandi framsetningu og miðlun á texta
    • helstu atriðum varðandi uppsetningu á íslenskum og erlendum verslunarbréfum og formbréfum
    • notkun töflureiknis við gerð myndrita og mótun þeirra á ýmsa vegu og hvernig hægt er að vinna saman með ritvinnslu og töflureikni og meðferð tölulegra gagna
    • tölfræði- og fjármálaföllum til útreikninga
    • pivot töflum til að taka saman og setja upp á skýran og einfaldan hátt mikið magn upplýsinga
    • helstu tegundum heimilda og einföldum vinnubrögðum við heimildaleit og -notkun
    • höfundarétti og notkun heimilda
    • siðfræði og siðferði Netsins (upplýsinga- og tölvusiðfræði)
    • einföldum og flóknari tíðnitöflum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með gagnagrunnsforrit til að skoða gagnasafn, hanna gagnagrunna, búa til fyrirspurnir, taka inn gögn úr öðrum kerfum og setja gögnin fram á aðgengilegan hátt í formi skýrslu
    • kalla fram myndrit í töflureikni og móta þau á ýmsa vegu og færa yfir í ritvinnslu með tengingu milli forrita
    • setja upp ritgerðir og nota þá möguleika sem ritvinnsluforritið hefur upp á að bjóða
    • setja fram heimildir og fara með tilvísanir í rituðum texta
    • fara með töluleg gögn og setja þau fram
    • vinna sjálfstætt
    • vinna með alls kyns tölfræðilegar upplýsingar, einföldum og flóknari tíðnitöflum og framsetningu á þeim á skýran og einfaldan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta metið, varðveitt, skapað og miðlað upplýsingum og þekkingu á skipulagðan og skilvirkan hátt (upplýsingalæsi)
    • vinna að mótun texta á ýmsan máta og stuðla að læsileika hans
    • setja upp lengri heimildaritgerð ásamt yfirlitum af ýmsu tagi, s.s. efnisyfirliti, mynda- og töfluyfirliti
    • vinna með töluleg gögn, móta þau og setja fram á myndrænan hátt
    • nýta möguleika töflureiknis til útreikninga á flókinn máta
    • greina valkosti í fjármálum og gera áætlanir fram í tímann
    • stunda örugg netsamskipti og sýna þar gott siðferði
    • vinna sjálfstætt að verkefnum og í samvinnu við aðra
    Námsmat er byggt á vinnu nemenda yfir önnina, skyndiprófum, verkefnum ásamt lokaprófi.