Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1471793112.96

    Teikning Anatómía
    MYNL2TA05
    21
    myndlist
    Teikniþjálfun, anatómía, módel, skissur
    í vinnslu
    2
    5
    Markmið áfangans er alhliða teikniþjálfun með áherslu á fríhendisteikningu og að efla sjónskilning og sjónminni. Nemendur teikna eftir lifandi fyrirmyndum og beinagrind. Lögð er lögð áhersla á að þeir tileinki sér grundvallaratriði í hlutfallaskiptingu mannslíkamans og noti hjálpargögn til að bera saman stærðarhlutföll, hreyfingu og stöðu. Þeir þjálfast í skissuvinnu, hraðteikningu og hugmyndavinnu t.d. með teikningu kvikmyndasena (storyboard) og skapandi skrifum. Markmiðið er að nemendur nái valdi á teikningu allt frá einföldum teikningum til flóknari úrlausna og rannsaki gildi og tjáningarmöguleika tækninnar með fjölbreyttum verkfærum og teikningu á manngerðum hlutum, náttúruformum og umhverfi. Unnið er með grafískar aðferðir, gagnsæishugsun og formgreiningu, mótun og efnisáferð með blæbrigðaríkri skyggingu. Nemendur eru þjálfaðir í að leggja mat á vinnu sína og annarra. Krafist verður sjálfstæðrar rannsóknarvinnu af nemendum í formi reglulegra skila á skissuvinnu, ferilbók sem tengist viðfangsefninu og þátttöku í umræðum.
    5 fein á 1 þrepi í myndlist
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • gildi og tjáningarmöguleikum teikningar
    • grundvallaratriðum hlutfallaskiptingar mannslíkamans
    • gildi stöðugrar ástundunar og þjálfunar í teikningu
    • hlutverki og möguleikum teikningar í sjónlistum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • teikna mannslíkamann, skissur, form og hluti
    • beita blýanti til að ná fram fjölbreytileik í línu og skyggingu
    • vinna sjálfstæða rannsóknarvinnu tengda myndlist
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá sig á myndrænan og skapandi hátt með eigin hugmyndir
    • kynna hugmynd sína og rökstyðja gildi hennar munnlega og skriflega
    • leita upplýsinga og byggja upp þekkingargrunn
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá