Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1472650578.11

    Spænska 1, a1 - menning og tungumál
    SPÆN1MT05
    83
    spænska
    menning og tungumál
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Spænskunáminu er skipt í erfiðleikastig samkvæmt evrópsku tungumálamöppunni. Þessi áfangi er byrjunaráfangi í spænsku (A1) Í áfanganum er lögð áhersla á samskipti og tjáningu ásamt hinum fjórum þáttum tungumálanáms, samtali, ritun, lestri og hlustun. Áfanginn er verkfæri til að hjálpa nemendum að ná tökum spænskunni, á hvað námsbraut sem er. Mismunandi kennsluaðferðir eru notaðar til þess að ná markmiðum áfangans. Dæmi um leiðir eru matargerð, vettvangsferðir, leikir, tónlist, bókmenntir o.s.frv. Lögð er áhersla á að nemendur læri að bera ábyrgð á eigin námi.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • einföldum orðum og orðasamböndum úr daglegu tali
    • almennum málhljóðum í spænsku máli
    • einföldum orðum og orðasamböndum út daglegu tali
    • að heilsast og kveðjast, spyrja/biðja um/panta og bjóða aðstoð
    • bjarga sér á spænsku og fá algengar upplýsingar
    • að nota hjálpartæki sér til aðstoðar við námið
    • spænskri menningu, lönd þar sem spænska er töluð
    • tengslum á milli Íslands og spænskumælandi landa
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja og nota orð og orðasambönd á spænsku
    • skilja einfaldan texta og auglýsingar
    • spyrja og svara einföldum spurningum um þekkt efni
    • nýta sér grundvallaratriði úr spænskri málfræði (kyn, tala, beyging)
    • spyrja og svara einföldum spurningum um þekkt efni
    • taka þátt í einföldum samtölum
    • þekkja tölur, fjölda, kostnað og tíma
    • tjá sig við aðra bekkjarfélaga
    • læra að vinna með öðrum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • kynna sálfan sig og aðra
    • eiga einföld samskipti; svara og spyrja spurninga um persónulega þætti
    • lesa stutta texta á spænsku
    • skrifa stutta texta með útskýringum
    • hlusta og skilja einfalda texta
    • skapa nýjar hugmyndir eða lausnir á spænsku
    • nýta sér spænsku við áhugamál
    • geta unnið með öðrum
    Fjölbreytt námsmat endurspeglar markmið áfangans í öllum færniþáttum í samræmi við evrópsku tungumálamöppuna (ETM). Símat sem byggist á ýmsum munnlegum og skriflegum verkefnum sem unnin eru yfir önnina. Engin próf eru i áfanganum.