Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1473415106.29

    Eðlis- og jarðfræði
    NÁTT1EJ05
    8
    náttúrufræði
    Eðlisfræði og jarðfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Grunnáfangi í jarðfræði þar sem fram fer kynning á viðfangsefnum jarðfræðinnar. Farið er yfir grunnhugtök í tenglsum við jarðfræðileg ferli og áhrif mannsins á þau. Einnig er farið í grunnatriði í eðlisfræði.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnlögmálum jarðfræðinnar og þeim ferlum sem stýra gangi náttúrunnar
    • umhverfi sínu og þeim landmótunarferlum sem stjórnast af innrænum og útrænum öflum
    • hugtökunum sjálfbærni og sjálfbærri þróun í tengslum við nýtingu náttúruauðlinda
    • lofthjúpnum og loftslagsbreytingum
    • eðli vatns og hringrás vatns á jörðinni
    • hreyfingu hluta, stöðuorku og áhrifum þyngdaraflsins
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja fram og túlka einfaldar myndir, kort og gröf
    • nota gögn og heimildir í raunvísindum
    • tengja við ferli í náttúrunni, hringrásir og lögmál
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera sér grein fyrir samhengi í náttúrunni út frá þeim ferlum sem stýra gangi náttúrunnar
    • skilja mikilvægi þessa að sýna umhverfi sínu og náttúru virðingu
    • gera sér grein fyrir ógnum í náttúrunni og viðbrögðum við þeim
    • útskýra og ræða um sjálfbærni, sjálfbæra þróun, náttúru, umhverfi, heilbrigði og velferð á lýðræðislegan og fordómalausan hátt
    • tengja þætti jarðfræðinnar við daglegt líf, eigið heilbrigði og umhverfi
    • lesa landfræðilegar upplýsingar úr kortum
    • lýsa hreyfingu hluta og áhrifum þyngdaraflsins
    Námsmatið samanstendur af lokaprófi, kaflaprófum, fjölbreyttum verkefnum, fyrirlestrum, ritgerðum, veggspjöldum, myndböndum, vettvangsferðum og verklegum æfingum.