Fjallað verður almennt um notkun á internetinu. Aðaláhersla áfangans er að læra uppsetningu á heimasíðum og kynnast mismunandi aðferðum til þess. Nemendur læra grunnatriði í Photoshop, HTML og CSS. Ýmis vefumsjónarkerfi sem finna má á internetinu skoðuð og settar upp nokkrar mismunandi vefsíður. Nemendur vinna lokaverkefni í formi vefsíðu þar sem reynir á alla þætti sem hafa verið skoðaðir í áfanganum.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
netsiðferði og höfundarétti
vefhönnun og útlitshönnun
útlitsaðlögun mynda fyrir vefsíður
uppsetningu á vefsíðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
notkun myndvinnsluforrits til að vinna myndir fyrir vefsíður
að setja inn texta á vefsíður
að setja inn myndir, hljóð og myndbönd á vefsíður
að tengja í efni og aðrar síður á vefsíðu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útbúa vefsíðu til einkanota
útbúa vefsíðu fyrir lítil fyrirtæki
geta haldið úti vefsíðu til einkanota
geta haldið úti vefsíðu fyrir lítil fyrirtæki
Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.