Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1475077370.0

    Framhaldsáfangi - sund 2
    HEIL2SÞ01(MA)
    3
    heilsa, lífsstíll
    Sund 2
    Samþykkt af skóla
    2
    1
    MA
    Nemendur mæta í sundlaug. Farið er í æfingar og drillur til að auka sundfærni í helstu sundtegundum, bringusundi, skriðsundi, baksundi og flugsundi. Notuð eru ýmis hjálpargögn eins og sundflár, blöðkur og spaðar. Einnig er unnið með þolæfingar í lengri vegalengdum. Farið er í helstu skyndihjálparatriði sem upp geta komið í sundlaug (köfun, björgunarsund, lífgunaraðferðir). Farið er inn á hvernig hægt er að nýta möguleika vatnsins til endurhæfingar og leikfimiæfinga.
    HEIL1HL02 eða HEIL1HN02
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • tækni í sundaðferðunum
    • skyndihjálparatriðum í sundlaug
    • möguleikum vatnsins til endurhæfingar og styrkingar
    • forvarnargildi heilsuræktar fyrir líkama og sál
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • synda allar sundaðferðir sér til heilsubótar
    • geta bjargað sjálfum sér og öðrum í vatni
    • tileinka sér tækni í mismunandi sundaðferðum
    • nýta sundferðir til þol- og styrktarþjálfunar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • synda töluverða vegalengd sér til ánægju og heilsubótar
    • hafa vald á mismunandi sundtegundum til að auka fjölbreytni við sundiðkun
    • framkvæma æfingar til endurhæfingar og auka styrk
    • geta brugðist við slysum sem upp geta komið í sundlaug eða við vötn
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.