Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1475753973.62

    Bókfærsla
    BÓKF1BF05
    2
    bókfærsla
    bókfærsla, dagbók, fyrsti áfangi, grunnatriði bókfærslu, inngangur að bókfærslu, uppgjör
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    AA
    Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um bókhaldshringrásina og helstu reglur tvíhliða bókhalds. Fjallað er um grundvallarhugtökin eignir, skuldir, gjöld og tekjur. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að annast almennar færslur í dagbók, hafi skilning á uppgjöri og geti sett fram efnahags- og rekstrarreikning. Nemendum er veitt innsýn í notkun flestra reikninga sem telja má til grunnreikninga í fjárhagsbókhaldi. Nemendum er gerð grein fyrir tilgangi bókhalds og kynnt helstu lög um bókhald og virðisaukaskatt.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • Grundvallarhugtökum tvíhliða bókhalds. • Hinum fjórum grundvallarlyklum bókhalds, eignir, skuldir, gjöld og tekjur. • Muninum á efnahags- og rekstrarreikningi. • Hugtökunum álagning, vextir, afskriftir, söluhagnaður og tap eigna. • Flutningsskilmálunum FOB og CIF • Undirstöðuatriðum launabókhalds.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • Hefja bókhald með hliðsjón af fyrirliggjandi efnahagsreikningi eða stofnun fyrirtækis. • Stilla upp prófjöfnuði. • Gera einfaldar dagbókarfærslur.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • Geta gert upp viðskipti fyrir ákveðið tímabil. • Geta gert lagfæringar á bókhaldinu með hliðsjón af einföldum athugasemdum svo sem varðandi afskriftir, birgðatalningu, fyrirfram og ógreiddan kostnað og fleira.. • Geta gert upp virðisaukaskatt. • Geta sett upp rekstrar- og efnahagsreikning í lok reikningstímabils að teknu tilliti til athugasemda og lokafærslna.