Aðalefni áfangans eru fantasíubókmenntir eftir misþekkta höfunda, sbr. J.K. Rowling – Harry Potter and the Philosopher‘s Stone, George R.R. Martin – Game of Thrones og Philip K. Dick – Do Androids Dream of Electric Sheep. Ennfremur fá nemendur tækifæri til að kynna ítarlega önnur verk er falla undir fantasíubókmenntir og skapa eitthvað frá eigin brjósti.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tjáningarmöguleikum rithöfunda sem skrifa í fantasíustíl
persónusköpun í bókmenntum og sjónmiðlum
mismunandi frásagnarstíl og sjónarhorni frá bók til sjónmiðils
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina mismunandi sjónarhorn fantasíuformsins
greina mismunandi gerðir fantasíuheima
greina söguform á gagnrýninn hátt með vísun í sögugerðir Propps
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá hugmyndir í riti
virkja sköpunarkraft og hugmyndaflug
geta betur notið fantasíubókmennta og þekki mismunandi minni bókmenntaverka.