1.Jafnlínuteikning. Frumformin teiknuð í þrívídd og skyggð. Síðan eru teiknuð fleiri form í þrívídd, tekið út úr og bætt við og skyggt.
2.Fríhendisteikning. Hlutateikning eftir fyrirmyndum. 3.Fjarvídd. Undirstöðuatriði fjarvíddar; Gerðar eru æfingar og tveggja- og þriggja hvarfpunkta myndir teiknaðar. 4.Modelteikning. Æfingar og þjálfun í að teikna mannslíkamann í réttum hlutföllum. 5.Teikniæfingar hvers kyns. 6.Skissubókarvinna. Nemendur fá ákveðin heimaverkefni og rannsóknarverkefni sem þeir eiga að leysa í skissubók og vinna líka frjálsa myndsköpun.
MYNL2FF05 og MYNL2MA05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að skoða hluti og umhverfi í þrívídd og fjarvídd.
að kynna sér listir og menningu í nútímanum og í mannkynssögunni.
hvernig hægt er að yfirfæra þekkingu sína og leikni.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
teikna form og hluti í þrívídd.
að beita blýanti til að ná fram fjölbreytileik í línu og skyggingu.
að beita aðferðum jafnlínuteikningar.
að horfa og teikna.
vinna sjálfstætt í rannsóknarvinnu tengdri myndlist.
að teikna mannslíkamann í réttum hlutföllum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig á myndrænan hátt.
efla athygli og gagnrýna hugsun.
efla frumkvæði og sköpun.
njóta listar og menningar.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá FS.