Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1484824668.57

    Saumtækni og sniðagerð
    FATA2FF05
    4
    fatahönnun
    Fatagerð framhald
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum vinna nemendur sjálfstætt að eigin hönnun, sniðum og saum. Kennari stendur hjá, aðstoðar og segir til. Nú ættu nemendur að geta unnið sjálfstætt með teikningu og verklýsingar. Nemendur koma með undirbúin snið í kennslustund. Nýjasta tíska í saumtækni er skoðuð og gerðar eru tilraunir. Saumuð er yfirhöfn eða kjóll. Handsaumur er unninn heima. Vettvangsferðir og sýningar verða á verkefnum nemenda.
    FATA1SH05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • útfærslu grunnsniða
    • flóknari saumtækni
    • saum og fóðri
    • verklýsingum og flötum teikningum
    • tískuteikningu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna við útfærslur á flóknari sniðum og breytingum á þeim
    • sauma og fóðra yfirhöfn
    • gera eigin vinnulýsingar og framkvæmdaáætlun
    • fara eftir vinnulýsingum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna sjálfstætt við snið og sniðútfærslur
    • sauma fóðraða yfirhöfn eða kjól
    • nota og gera vinnulýsingar
    • temja sér vönduð vinnubrögð
    Fjölbreytt námsmat. T.d mæting og virkni, Vinnulýsingu fyrir fóðraða flík. Aðrar vinnulýsingar. Prófa þekkingu á sniðagerð. Heimapróf. Hópverkefni. Heimavinna. Mat á frágangi og vinnubrögðum við saum á yfirhöfn