Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1484830163.31

    Saumtækni og sniðagerð
    FATA3FF05
    5
    fatahönnun
    Fatagerð framhald
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Síðasti fatasaumsáfangi fyrir lokaverkefni. Í þessum áfanga vinna nemendur sjálfstætt og þurfa öguð vinnubrögð og skipulag. Kennari skipuleggur ekki tíma nemenda heldur setur nemandinn upp skipulagið til samþykktar. Þekking dýpkuð í sniðum og saum sem er fylgt eftir í heimaæfingum og heimaprófum. Í saumtækni verða kenndar aðferðir í fínni saum t.d. paspóleruð hnappagöt, lokuföll, fóðraðar klaufir, falin hnepping o.fl. Nemendur læra aðferðina í kennslustund og þarf að endurtaka heima til að efla sjálfstæð vinnubrögð sem eru grundvöllur fyrir lokaáfangann.
    FATA2SH05 og/eða FATA2FF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • fínni saumtækni
    • sniðagerð með fínni smáatriðum
    • gerð framkvæmdaáætlunar
    • raða verkefninu upp í rétta röð
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna eftir framkvæmdaáætlun
    • vinna sjálfstætt
    • skipuleggja vinnu og tíma
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna að flík sem er flókin
    • geta útskýrt val á aðferðum í sniðtækni
    • geta saman framkvæmdaáætlun
    • bera ábyrgð á verkefni
    • geta unnið undir álagi og tímapressu
    Símat, heimapróf og saumtækniverkefni í tíma eru metin. Framkvæmdaáætlun og svo skipulag á vinnu. Virkni í tímum og skil á verkefnum. Lokaafurðir yfirfarnar og metnar.